Íslensk nútímamálsorðabók
Ítarleit
- Færslur
- 56.148
- Orðafjöldi í skýringum
- 424.741
- Orðafjöldi í orðasamböndum
- 61.873
- Orðafjöldi í dæmum
- 221.616
stormsvala
nafnorð kvenkynlítill dökkur sjófugl
tjaldur
nafnorð karlkynstór vaðfugl, svartur á baki, höfði og hálsi, hvítur að neðan, með rauðan gogg og rauða fætur
himbrimi
nafnorð karlkynBeygingarmynd stór vatnafugl, karlinn með svart höfuð og bak alsett hvítum tíglum
langvía
nafnorð kvenkynBeygingarmynd sjófugl af svartfuglaætt, svarbrúnn með hvíta bringu og svartan oddhvassan gogg
tittlingur
nafnorð karlkynlítill spörfugl (engin sérstök tegund)
strútur
nafnorð karlkynstór, háfættur og hálslangur fugl með lítið höfuð, er ófleygur en hleypur mjög hratt
barrfinka
nafnorð kvenkynlítill grængulur spörfugl, flækingur á Íslandi
auðnutittlingur
nafnorð karlkynlítill grábrúnn spörfugl með rauðan blett á enni
gráspör
nafnorð karlkynlítill spörfugl, karlinn rauðbrúnn en kvenfuglinn grábrúnn að ofan
flóastelkur
nafnorð karlkynlítill stelkur, dröfnóttur að ofan, óreglulegur varpfugl á Íslandi
hettusöngvari
nafnorð karlkynlítill gráleitur spörfugl með dökkan koll, flækingur á Íslandi
fjallafinka
nafnorð kvenkynBeygingarmynd lítil finka með rauðgula bringu, flækingsfugl á Íslandi
albatros
nafnorð karlkynBeygingarmynd stór sjófugl með litla vængi, lifir á suðurhveli jarðar
snjótittlingur
nafnorð karlkynfremur lítill spörfugl, hvítur eða ljósbrúnn með dökkt bak, nefnist sólskríkja á sumrin
brönugras
nafnorð hvorugkynBeygingarmynd íslensk plöntutegund, með fáum svartblettóttum blöðum og litlum, fjólurauðum blómum í klasa; vex í grónu landi
fuglahús
nafnorð hvorugkynBeygingarmynd lítið tréhús í húsagarði fyrir fugla að verpa í
örverpi
nafnorð hvorugkynBeygingarmynd lítið eða lélegt fuglsegg
geirfugl
nafnorð karlkynsvartfugl sem nú er útdauður
svartfuglsegg
nafnorð hvorugkynegg svartfugls, t.d. langvíu
slæðingur
nafnorð karlkynBeygingarmynd dálítið af einhverju, t.d. fólki, fé, erlendum plöntum eða fuglum