Yrða er íslensk veforðabók með það að markmiði að sameina gögn úr ólíkum áttum á einum stað í skýru og snörpu viðmóti.
Yrða er sjálfstætt verkefni sem Haukur Páll Hallvarðsson þróar og heldur úti. Ábendingar og fyrirspurnir má senda á haukur@yrda.is.
Heimildir
Afleidd gögn úr heimildum með DeilaEins-skilyrði eru birt undir sama leyfi.
Tölurnar sýna annars vegar heildarfjölda færslna eða flettna og hins vegar einkvæm leitarform eftir stöðlun Yrðu. Fyrir Íslenska nútímamálsorðabók og BÍN bætist við fjöldi einkvæmra beygingarmynda sem hægt er að leita eftir, eftir sömu stöðlun.
Íslensk nútímamálsorðabók
56.148 færslur55.190 leitarform648.617 beygingarmyndirSkilgreiningar og merkingarskýringar í Yrðu eru fengnar úr Íslenskri nútímamálsorðabók, útgáfu frá desember 2023, eftir Halldóru Jónsdóttur og Þórdísi Úlfarsdóttur. Orðabókin er gefin út af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Gögnin hafa verið tæknilega endursniðin fyrir leit og birtingu í Yrðu. Gæsalappir og þankastrik sem eru rangt kóðuð í útgáfunni hafa verið leiðrétt, ásamt stöku innsláttarvillum; að öðru leyti eru orðskýringar birtar óbreyttar. Birting og framsetning Íslenskrar nútímamálsorðabókar á yrda.is er á ábyrgð Yrðu, ekki útgefanda orðabókarinnar.
Notkunarleyfi: CC BY-SA 4.0.
Beygingarlýsing íslensks nútímamáls (BÍN)
355.897 færslur347.915 leitarform3.697.897 beygingarmyndirBeygingargögn eru fengin úr Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN), sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefur út; höfundur og ritstjóri er Kristín Bjarnadóttir. Gögnin eru notuð til að birta beygingartöflur og gera leit eftir beygingarmyndum mögulega. Þau eru lesin með forritasafninu @yrda/beygir og tæknilega endursniðin fyrir leit og birtingu í Yrðu; gögnin voru sótt 2. júlí 2026. Réttindi að gögnunum eru á hendi Stofnunar Árna Magnússonar, sem ábyrgist ekki að BÍN henti fyrir tiltekna notkun.
Notkunarleyfi: CC BY-SA 4.0.
Íslenskt orðanet
100.949 flettur100.936 leitarformUndir færslum úr Íslenskri nútímamálsorðabók birtast tengd orð úr Íslensku orðaneti (útgáfu 21.06) eftir Jón Hilmar Jónsson, Hjalta Daníelsson, Þórð Arnar Árnason og Alec Shaw, sem Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefur út: samheiti, andheiti, grannheiti, samstæður, orðasvið og orðasambönd. Orðanet er merkingarvenslanet þar sem merking orðs ræðst af venslum þess við önnur orð; gögnin eru tæknilega endursniðin fyrir birtingu í Yrðu.
Notkunarleyfi: CC BY 4.0.
Forníslensk-ensk orðabók: An Icelandic-English Dictionary
35.207 færslur34.742 leitarformGuðbrandur Vigfússon endurskoðaði, jók og lauk verkinu sem byggðist á starfi Konráðs Gíslasonar, Brynjólfs Péturssonar, Benedikts Gröndals og annarra Íslendinga í Kaupmannahöfn. Richard Cleasby fjármagnaði verkið. Útgefin 1874.
Gögnin eru sótt í stafræna útgáfu orðabókarinnar. Skýringar á skammstöfunum og heitum tilvitnaðra rita byggjast á Cleasby & Vigfusson Abbreviations eftir Sampo Silvennoinen. Hvort tveggja er birt undir MIT-leyfi.
Ensk-íslensk orðabók
47.599 færslur42.130 leitarformGögnin eru fengin úr verkefni Sveinbjörns Þórðarsonar og birt með yfirförnum leiðréttingum, sem skráðar eru í kvísl Yrðu af verkefninu. Orðabókin er einnig aðgengileg í heild sinni á ensk.is.
Orðasafnið á rætur að rekja til Ensk-íslenzku orðabókarinnar eftir Geir T. Zoëga, rektor við Lærða skólann í Reykjavík, sem fyrst kom út 1896. Sú útgáfa sem notuð er hér byggist á endurbættri útgáfu Þorsteins Þorsteinssonar frá 1932, sem hefur síðan verið uppfærð, leiðrétt og stórlega aukin á stafrænu sniði.
Notkunarleyfi: CC0 (almenningseign).
English Speller Database
Leit eftir enskum beygingarmyndum notar English Speller Database eftir Kevin Atkinson. Gögnin eru endursniðin fyrir leit.
Notkunarleyfi: MIT-líkt leyfi.
Open English WordNet
24.426 flettur24.401 leitarformSamheiti og andheiti í ensku orðabókinni eru fengin úr Open English WordNet (2025 útgáfu), sem byggist á Princeton WordNet. Gögnin eru endursniðin.
Notkunarleyfi: CC BY 4.0 og leyfi WordNet.
Rýnir
Orðasafn Rýnis er unnið úr BÍN og skammstafanaskrá BÍN. Tillögum er raðað eftir tíðni úr Risamálheildinni (IGC-2024) frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Notkunarleyfi: CC BY-SA 4.0 (BÍN) og CC BY 4.0 (Risamálheildin).
Leyfistextar sem fylgja gögnum, letri og hugbúnaði annarra eru í einni skrá.