Íslensk nútímamálsorðabók
Ítarleit
- Færslur
- 56.148
- Orðafjöldi í skýringum
- 424.741
- Orðafjöldi í orðasamböndum
- 61.873
- Orðafjöldi í dæmum
- 221.616
íkon
nafnorð karlkyn/hvorugkynBeygingarmynd lítil táknmynd fyrir forrit eða aðra virkni
munnhöggvast
sagnorðBeygingarmynd rífast (oft lengi og af litlu tilefni)
skrimta
sagnorðBeygingarmynd lifa við lítil efni, komast naumlega af
aðlíðandi
lýsingarorðBeygingarmynd sem hefur lítinn en jafnan halla, aflíðandi
bætiefnasnauður
lýsingarorðBeygingarmynd með litlu magni af vítamínum eða steinefnum
fitusnauður
lýsingarorðBeygingarmynd með litlu magni af fitu eða fituefnum
fyrirvaralítill
lýsingarorðBeygingarmynd með stuttum aðdraganda, með litlum fyrirvara
gróðursnauður
lýsingarorðBeygingarmynd með litlum eða engum lifandi gróðri, gróðurlaus
gæfulaus
lýsingarorðBeygingarmynd sem hefur hlotið litla gæfu, ógæfusamur, lánlaus
heiðskír
lýsingarorðBeygingarmynd með litlum eða engum skýjum, blár og bjartur
hlutfallslegur
lýsingarorðstór eða lítill gagnvart öðru, miðaður við hlutfall
lánlítill
lýsingarorðBeygingarmynd sem hefur hlotið litla gæfu, ekki gæfusamur
ónæðissamur
lýsingarorðBeygingarmynd með litlu næði, með miklum truflunum
örlítið
atviksorðBeygingarmynd mjög lítið, sem munar mjög litlu um
ódöngun
nafnorð kvenkynBeygingarmynd það að barn eða skepna þrífst illa (er lítil og veikluleg)
kví
nafnorð kvenkynBeygingarmynd lítil rétt þar sem sauðkindur voru mjólkaðar
altént
atviksorðBeygingarmynd að minnsta kosti, þó ekki sé annað
bryggjupolli
nafnorð karlkynlítill staur á bryggju til að festa bát eða skip við
daljökull
nafnorð karlkynBeygingarmynd þunnur hægfara skriðjökull sem kemur af litlu svæði
golfbolti
nafnorð karlkynlítill, hvítur, harður bolti notaður í golfi, golfkúla