Yrða

Nýjungar

Rýnir: yfirlestur fyrir íslenskan texta

Rýnir les yfir íslenskan texta, merkir orð sem eru líklega rangt rituð og leggur til leiðréttingar. Rýnir er neðst í fellilista orðabókanna og einnig aðgengilegur á rynir.yrda.is. Orðasafn Rýnis er unnið úr BÍN og tillögum er raðað eftir tíðni orða í Risamálheildinni. Textinn er ekki vistaður. Rýnir er á tilraunastigi.

Ítarleit

  • Hnappurinn Ítarleit efst á síðunni leitar í skýringum, dæmum, orðasamböndum og orðhlutum, ekki aðeins í flettum. Leitarorðin lítill svartur fugl finna til dæmis orðin lundi, kráka og hrafn.
  • Leitin finnur orð þótt þau séu slegin inn í beygðri mynd eða með ritvillu. Í stillingum má afmarka hana við tiltekna hluta færslna eða orðflokk og leita að orðréttri setningu.
  • Ensk-íslenska orðabókin nýtist nú líka sem íslensk-ensk orðabók: ítarleit að íslensku orði finnur þær ensku flettur sem það kemur fyrir í. Leitarorðið gleði finnur til dæmis joy, gladness og cheerfulness.
  • Í forníslensk-ensku orðabókinni má á sama hátt leita í enskum skýringum; leitarorðið raven finnur til dæmis orðin hrafn, krummi og Huginn.
  • Finnist orð ekki í orðabókinni birtast einnig efstu niðurstöður ítarleitar.

Deilimyndir

Þegar færslu er deilt á samfélagsmiðlum eða í spjalli fylgir henni nú mynd með flettunni og stuttri skilgreiningu. Á myndum BÍN-færslna sést beyging orðsins.

Beygingarlýsing íslensks nútímamáls

Fjórða safninu bætt við: Beygingarlýsing íslensks nútímamáls (BÍN) með beygingum rúmlega 350 þúsund orða. Sé orðið einnig í Íslenskri nútímamálsorðabók vísar tengill á færslu þess þar. Söfnin eru nú einnig á eigin lénum: bin.yrda.is, ensk.yrda.is og forn.yrda.is. Nánar um gögnin má lesa hér.

Hraðari Yrða

Nú krefst Íslensk nútímamálsorðabók aðeins 186 KB gagnaskrár við fyrstu heimsókn í stað 670 KB. Áður voru bæði flettur (219 KB) og beygingarmyndir (451 KB) sóttar strax. Nú deila flettur sameiginlegum upphöfum og endingum í einni skrá og beygingarmyndir (64 KB) eru sóttar á eftir, kóðaðar eftir beygingarmynstrum. Allar stærðir eru þjappaðar. Hinar orðabækurnar tvær minnkuðu um 16 til 18% og fyrstu niðurstöður birtast mun fyrr á hægum tengingum. Síður eru auk þess myndaðar á vefþjóni, svo færslan birtist strax í fyrsta svari og tenglar virka án JavaScript.

Tenglar milli orðabóka

Íslenskar þýðingar í ensk-íslensku orðabókinni vísa nú á færslur í Íslenskri nútímamálsorðabók; til dæmis vísar horse á hestur og hross. Í forníslensk-ensku orðabókinni eru vísanir í aðrar flettur og skyld orð nú tenglar.

Vikulegar uppfærslur ensk-íslensku orðabókarinnar

Ensk-íslenska orðabókin er nú uppfærð vikulega frá ensk.is, svo viðbætur og leiðréttingar Sveinbjörns Þórðarsonar berast fljótt í Yrðu.

Vefur Beygis

Forritasafnið Beygir, sem Yrða notar til að lesa beygingar úr BÍN, hefur nú eigin vef á beygir.yrda.is með skjölun og gagnvirku dæmi þar sem prófa má beygingar beint í vafranum.

Tengd orð úr Íslensku orðaneti

Undir færslum úr Íslenskri nútímamálsorðabók birtast nú samheiti, andheiti og grannheiti, ásamt samstæðum, orðasviðum og orðasamböndum orðsins. Gögnin eru fengin úr Íslensku orðaneti eftir Jón Hilmar Jónsson, Hjalta Daníelsson, Þórð Arnar Árnason og Alec Shaw. Smella má á orðin til að fletta þeim upp. Nánar um gögnin má lesa hér.

Ensk-íslensk orðabók og safnaval með flýtilykli

  • Þriðja safninu bætt við: ensk-íslensk orðabók byggð á Ensk-íslenzku orðabókinni eftir Geir T. Zoëga. Stórlega endurbætt og færð á stafrænt snið á ensk.is af Sveinbirni Þórðarsyni. Nánar um gögnin má lesa hér.
  • Nú er hægt að skipta á milli orðabóka með ⌘⇧K (macOS) eða ⌃⇧K (Windows). Fellilistinn styður örvar til að velja orðabók, færsluhnapp til að staðfesta og lausnarhnapp eða ⌘⇧K/⌃⇧K aftur til að loka. Einnig er hægt að slá inn nafn orðabókar til að hoppa beint í hana.

Leit í beygingarmyndum

Leit í íslensku nútímamálsorðabókinni finnur nú orð eftir beygingarmyndum þeirra, t.d. má finna bæði „skjöld“ og „skilja“ með því að slá inn „skildi.“

Forníslensk-ensk orðabók

Fyrsta útgáfa forníslensk-ensku orðabókarinnar er nú aðgengileg í fellilistanum. Nánar um gögnin má lesa hér.

Flýtihnappar

Nú er hægt að velja leitarsvæði með ⌘K eða ⌃K, þ.e. slaufuhnappi og K í macOS en stýrihnappi og K í Windows.

Beygingartöflur

Nú er hægt að skoða beygingarmyndir orða beint í orðabókinni.

Yrða opnar

Yrða kemur fyrst á sjónarsviðið á yrða.is! Fyrsta útgáfan birtir gögn úr Íslenskri nútímamálsorðabók Árnastofnunar.