áfangi
nafnorð karlkyn á-fangi
1
vegalengd milli tveggja áningarstaða, hluti af leið
erfiðasti áfanginn var upp fjallshlíðina
2
hluti af verki eða ferli
áfangi að <markinu>
<vinna verkið> í áföngum
3
hluti námsgreinar sem lokið er á einni námsönn í áfangakerfi skóla, námsáfangi
hún þarf að taka fjóra áfanga í stærðfræði
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
áfangi
áfanginn
þolfall
áfanga
áfangann
þágufall
áfanga
áfanganum
eignarfall
áfanga
áfangans
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
áfangar
áfangarnir
þolfall
áfanga
áfangana
þágufall
áföngum
áföngunum
eignarfall
áfanga
áfanganna