árangur
nafnorð karlkyn ár-angur
niðurstaða af starfi eða verki
við sjáum góðan árangur af skógræktinni
samvinna er lykillinn að árangri
ná árangri
við höfum náð árangri í öryggismálum sjómanna
<starfið> ber árangur
tilraunir til að hringja í fyrirtækið báru engan árangur
<þetta var reynt> án árangurs
hann leitaði í skápnum án árangurs
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
árangur
Samstæður
- ávinningur
- , framfarir
- , farsæld
- , líðan
- , þróun
- , vellíðan
Orðasambönd
- án árangurs
- árangur í starfi
- bæta árangur sinn
- líklegur til árangurs
- ná árangri
- sýna árangur
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
árangur
árangurinn
þolfall
árangur
árangurinn
þágufall
árangri
árangrinum
eignarfall
árangurs
árangursins