þörf
nafnorð kvenkyn
það að þarfnast e-s, eitthvað nauðsynlegt, eitthvað sem þarf
allir hafa þörf fyrir ást og umhyggju
það er þörf á breytingum í stjórnkerfinu
brýn þörf
þess gerist ekki þörf
ekki er þörf á því, þess þarf ekki
hann ætlaði að hringja í lækni en þess gerðist ekki þörf
<nota stafinn> eftir þörfum
gera þarfir sínar <þar>
láta frá sér hægðir, kúka þar
hugsa <honum> þegjandi þörfina
heita því með sjálfum sér að hefna sín á <honum> við tækifæri
<peysan> kemur í góðar þarfir
peysan kemur sér vel, það eru góð not fyrir peysuna
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
þörf
Orðasambönd
- bráð er barns þörf
- bæta úr brýnustu þörfinni
- ef þess gerist þörf
- ef þörf krefur
- eftir þörfum
- gera þarfir sínar í hreiður sitt
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
þörf
þörfin
þolfall
þörf
þörfina
þágufall
þörf
þörfinni
eignarfall
þarfar
þarfarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
þarfir
þarfirnar
þolfall
þarfir
þarfirnar
þágufall
þörfum
þörfunum
eignarfall
þarfa
þarfanna