Yrða

aðalhlutverk

nafnorð hvorugkyn aðal-hlutverk
1
stórt hlutverk í leiksýningu eða kvikmynd
ung leikkona fer með aðalhlutverkið í sýningunni
vera í aðalhlutverki
skiptir mestu, er mest áberandi
stjórnmálamenn eiga að vera í aðalhlutverki við stefnumótun
2
helsti tilgangur, mikilvægasta hlutverk
aðalhlutverk nefndarinnar er að safna gögnum
Orðasvið og orðasambönd
Orðasambönd
  • leika aðalhlutverkið
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
aðalhlutverk
aðalhlutverkið
þolfall
aðalhlutverk
aðalhlutverkið
þágufall
aðalhlutverki
aðalhlutverkinu
eignarfall
aðalhlutverks
aðalhlutverksins