Yrða

aðdráttarafl

nafnorð hvorugkyn aðdráttar-afl
1
eðlisfræði
sá eiginleiki hluta sem hafa massa (t.d. himintungla) að dragast hver að öðrum
2
sá eiginleiki staðar, hlutar, hugmyndar eða manneskju að laða að sér fólk
garðarnir hafa mikið aðdráttarafl og eru fjölsóttir af ferðamönnum
aðdráttarafl stúlkunnar gerði hann máttlausan
Orðasvið og samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
aðdráttarafl
aðdráttaraflið
þolfall
aðdráttarafl
aðdráttaraflið
þágufall
aðdráttarafli
aðdráttaraflinu
eignarfall
aðdráttarafls
aðdráttaraflsins