aðstæður
nafnorð kvenkyn fleirtala að-stæður
það hvernig e-u er háttað, það hvernig e-ð er, hættir
í dalnum eru góðar aðstæður til búsetu
það er erfitt að stunda nám við þessar aðstæður
fyrirtækið ætlar að kynna sér aðstæðurnar á markaðnum
bíllinn er sérútbúinn fyrir aðstæður á jöklum
skýrslan miðast við núverandi aðstæður
í ljósi ríkjandi aðstæðna þarf að draga úr ríkisrekstri
<siglt verður út í eyjar> ef aðstæður leyfa
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
aðstæður
Samstæður
Orðasambönd
- bágar félagslegar aðstæður
- ef aðstæður leyfa
- eins og aðstæðum er háttað
- erfiðar aðstæður
- félagslegar aðstæður
- lélegar aðstæður
Fallbeygingar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
aðstæður
aðstæðurnar
þolfall
aðstæður
aðstæðurnar
þágufall
aðstæðum
aðstæðunum
eignarfall
aðstæðna
aðstæðnanna