armur
nafnorð karlkyn
1
handleggur
bjóða <henni> arminn
2
hópur sem er í útjaðri e-s
vinstri armur flokksins virtist vera horfinn
3
hliðarbrík á stól
hún lagði handleggina á armana á stólnum
4
stærðfræði
önnur hlið jafnarma þríhyrnings; annar geisli horns
armur laganna
lögreglan
taka <honum> opnum örmum
taka honum fagnandi
taka <hana> upp á arma sína
taka hana að sér
taka <málið> upp á sína arma
taka það að sér
<spillingin> teygir arma sína <inn í stjórnkerfi landsins>
... nær alla leið ...
Samstæður
Samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
armur
armurinn
þolfall
arm
arminn
þágufall
armi
arminum
eignarfall
arms
armsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
armar
armarnir
þolfall
arma
armana
þágufall
örmum
örmunum
eignarfall
arma
armanna