Yrða

bera2

sagnorð
1
þolfall
flytja (e-ð) í höndunum, halda á (e-u)
hann bar ferðatöskuna út í bíl
við bárum sófann á milli okkar
þjónar báru matinn á borðin
2
þolfall
vera með (e-ð) á sér, á líkamanum
lögreglan ber venjulega ekki vopn
hún bar dýra skartgripi
bera þess merki
hafa það sýnilegt
hann bar þess engin merki að hann væri reiður
3
þágufall/þolfall
flytja, færa (t.d. frétt, boð)
hún bar mér fréttir af barnsfæðingunni
hann lofaði að bera henni kveðju mína
4
þágufall
eignast afkvæmi (um kind, kú)
ærin bar tveimur lömbum
5
bera sig vel
vera rólegur, kvarta ekki
hann bar sig vel þrátt fyrir gjaldþrotið
bera sig illa
vera aumur, kvarta
6
<verslunin> ber sig
verslunin er rekin með hagnaði
reksturinn bar sig ekki fyrsta árið
7
þolfall
hreyfast í e-a átt fyrir utanaðkomandi öflum
bátinn bar að landi í lítilli vík
8
þolfall
sjást fyrir framan (e-ð)
kirkjuna ber við himin uppi á hæðinni
9
þolfall
<erfiðleika> ber að höndum
erfiðleikar koma upp
<málefnið> ber á góma
málefnið er umræðuefni
10
þágufall
hafa (e-a) skyldu, eiga (að gera e-ð)
starfsmönnum ber að hlýða yfirmanni sínum
11
bera + að
a
bera sig <þannig> að
fara þannig að, gera e-ð þannig
hvernig á að bera sig að við að planta trjám?
b
þolfall<óhappið> ber <þannig> að
óhappið vill þannig til, atvikast, gerist á þann hátt
við vitum ekki hvernig slysið bar að
12
bera + af
a
bera af (öðrum)
standa miklu framar öðrum
þetta málverk er fallegast, það ber af
hann ber af öðrum nemendum í bekknum
b
bera af sér <höggið>
hlífa sér við högginu með höndunum eða vopni
13
bera + á
a
bera <krem> á <andlitið>
smyrja kremi á andlitið
hann bar skósvertu á skóna
bera á túnið
dreifa áburði á túnið
b
það ber <mikið> á <þessu>
þetta sést vel, er áberandi
í vortískunni ber mikið á litríkum kjólum
lítið hefur borið á flensu í vetur
láta lítið á sér bera
gera sig fyrirferðarlítinn
<ganga út> svo lítið ber á
c
bera á <hana> sakir
ásaka hana um e-ð
14
bera + á móti
bera á móti <þessu>
andmæla þessu
hún bar á móti því að hún væri óstundvís
15
bera + fram
a
bera fram <orðið>
hafa vissan framburð á orðinu
Íslendingum finnst oft erfitt að bera fram dönsku
b
bera fram <veitingar>
leggja veitingar á borð
í veislunni voru bornir fram kaldir réttir
c
bera fram <mótmæli>
koma með, viðhafa mótmæli
má ég bera fram tillögu?
16
bera + fyrir
a
það ber <margt> fyrir <mig>
margt kemur fyrir mig
hvað bar helst fyrir ykkur í Kína?
lítið hafði borið fyrir í sveitinni það ár
<margt> ber fyrir augu
það er margt að sjá
b
bera fyrir sig <minnisleysi>
(reyna að) nota minnisleysi sér til afsökunar
17
bera + með
a
bera <þetta> með sér
hafa slíkt yfirbragð
hún ber það með sér að hún hefur aldrei unnið verkamannavinnu
b
<mýflugan> ber með sér <sjúkdóminn>
mýflugan dreifir sjúkdómnum
18
bera + niður
bera <þar> niður
opna bókina á þeim stað
hann bar niður í miðri sögunni
19
bera + saman
a
bera saman <þetta tvennt>
gera samanburð á þessu tvennu
ég bar saman litina og sá að annar var dekkri
bera <þetta> saman við <hitt>
við getum ekki borið kindur saman við kýr
b
þágufall<þeim> ber saman
þau segja sömu sögu, hafa það sama að segja
bílstjórunum bar ekki saman um orsakir árekstursins
þágufall<þeim> ber saman um <þetta>
þær eru sammála um þetta
20
bera + til
a
það ber til
það gerist, á sér stað
það bar til dag einn að óvæntur gestur kom í heimsókn
hvað ber til?
hvernig stendur á þessu?
hvað ber til að hún er í góðu skapi?
b
hafa <margt> til að bera
hafa marga eiginleika eða kosti
hún hefur ýmislegt til að bera sem góður kennari
21
bera + undir
bera <textann> undir <hana>
ráðfæra sig við hana varðandi textann
hann bar það undir lækninn sinn hvort hann gæti farið í langferð
22
bera + upp
a
bera upp <erindið>
segja erindi sitt
tillagan var borin upp á fundinum
b
þolfall
<1. maí> ber upp á <laugardag>
1. maí lendir á laugardegi
23
bera + utan á
bera <auðæfin> utan á sér
vera sýnilega ríkur
24
bera + út
a
bera út póst
dreifa póstinum í húsin
bera út dagblöð
b
bera út <söguna>
segja mönnum söguna, dreifa henni meðal fólks
c
bera út <leigjandann>
koma honum út með valdi (t.d. af því að hann borgaði ekki leiguna)
d
bera út barn
skilja barn eftir úti á víðavangi til að það deyi
25
bera + út af
það má ekkert út af bera
ekkert má fara úrskeiðis
26
bera + við
a
það ber við
það kemur fyrir
það bar stundum við að hún þurfti að vinna á kvöldin
b
bera við <lasleika>
nota lasleika sér til afsökunar
hann var heima og bar við veikindum
c
þolfall
<kirkjuna> ber við <himin>
kirkjan gnæfir upp við himin, hefur himininn í bakgrunni
→ sjá: berast sagnorð, borinn lýsingarorð
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
ber
bar
önnur persóna
berð
barst
þriðja persóna
ber
bar
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
beri
bæri
önnur persóna
berir
bærir
þriðja persóna
beri
bæri
nafnháttur
bera
sagnbót
borið
lýsingarháttur nútíðar
berandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
ber
berðu
berið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
berðu
barstu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
berirðu
bærirðu
Ópersónuleg notkun
Frumlag í þágufalli
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
ber
bar
önnur persóna
ber
bar
þriðja persóna
ber
bar
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
beri
bæri
önnur persóna
beri
bæri
þriðja persóna
beri
bæri
Frumlag í þolfalli
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
ber
bar
önnur persóna
ber
bar
þriðja persóna
ber
bar
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
beri
bæri
önnur persóna
beri
bæri
þriðja persóna
beri
bæri
Ópersónuleg
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
ber
bar
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
beri
bæri
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
borinn
borin
borið
þolfall
borinn
borna
borið
þágufall
bornum
borinni
bornu
eignarfall
borins
borinnar
borins