blað
nafnorð hvorugkyn
1
laufblað
blóm og blöð af jurtum
2
stykki af pappír
þrjú þéttskrifuð blöð
3
dagblað eða tímarit
hann sá um barnaefni á blaðinu
4
hnífsblað
5
þynna, t.d. af gulli
snúa við blaðinu
hverfa frá fyrri stefnu eða líferni
það er engum blöðum um (það) að fletta að <hann er góður sjónvarpsmaður>
það er enginn efi að ...
<hér> er brotið blað í <sögu tækninnar>
hér eru mörkuð þáttaskil ...
Orðasvið og samstæður
fjölmiðill
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
blað
blaðið
þolfall
blað
blaðið
þágufall
blaði
blaðinu
eignarfall
blaðs
blaðsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
blöð
blöðin
þolfall
blöð
blöðin
þágufall
blöðum
blöðunum
eignarfall
blaða
blaðanna