breyting
nafnorð kvenkyn breyt-ing
það að e-ð breytist, umskipti
breyting varð á stjórnarskránni 1915
læknirinn sá breytingu á sjúklingnum
það urðu breytingar í fjölskyldunni þegar barnið fæddist
hann var lengi að venjast breytingunum
<þjóðfélagið> tekur breytingum
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
breyting
Samstæður
Orðasambönd
- breyting til batnaðar
- breyting til hins betra
- breyting til hins verra
- breytingar á atvinnuháttum
- gera breytingar
- með áorðnum breytingum
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
breyting
breytingin
þolfall
breytingu
breytinguna
þágufall
breytingu
breytingunni
eignarfall
breytingar
breytingarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
breytingar
breytingarnar
þolfall
breytingar
breytingarnar
þágufall
breytingum
breytingunum
eignarfall
breytinga
breytinganna