dragast
sagnorð miðmynd
1
vera dreginn á jörðinni eða gólfinu
trefillinn dróst eftir gólfinu
2
tefjast, frestast, vera seinkað
útgáfa bókarinnar dróst um heilt ár
undirritun samningsins hefur dregist
<fyrirlesturinn> dregst á langinn
hann verður allt of langur
<húsbyggingin> dregst úr hömlu
hún tefst óhóflega
3
dragast + áfram
dragast áfram
komast áfram með erfiðismunum
hann dregst áfram á tveimur hækjum
4
dragast + aftur úr
dragast aftur úr
verða seinni en hinir
nokkrir hlauparanna drógust aftur úr
5
dragast + inn í
dragast inn í <deiluna>
blandast í deiluna
6
dragast + saman
<salan> dregst saman
salan minnkar
heildarútflutningur dróst saman um 4 prósent
→ sjá: draga sagnorð
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
dregst
dróst
önnur persóna
dregst
dróst
þriðja persóna
dregst
dróst
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
drögumst
drógumst
önnur persóna
dragist
drógust
þriðja persóna
dragast
drógust
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
dragist
drægist
önnur persóna
dragist
drægist
þriðja persóna
dragist
drægist
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
drögumst
drægjumst
önnur persóna
dragist
drægjust
þriðja persóna
dragist
drægjust
nafnháttur
dragast
sagnbót
dregist
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
dregstu
dróstu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
dragistu
drægistu