frétt
nafnorð kvenkyn
1
nýfengnar upplýsingar um ýmis málefni sem sagt er frá í tali eða riti
eru einhverjar fréttir af dóttur þinni?
2
í fleirtölu
liður í dagskrá útvarps eða sjónvarp þar sem sagt er frá nýjum heimsmálum og samfélagsmálum
frétt/fréttir um <atburðina>
fréttir herma að <forsetinn sé væntanlegur í heimsókn>
hvað er í fréttum?
leita frétta
spyrja frétta
segja fréttir
verjast allra frétta
neita að segja neitt um málið
<segja henni þetta> í óspurðum fréttum
... án þess að hún hafi spurt, að tilefnislausu
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
frétt / spurnir
Orðasambönd
- hafa fréttir að færa
- í óspurðum fréttum
- leita frétta
- spyrja frétta
- verjast allra frétta
- það ber ekki til titla né tíðinda, frétta né frásagna
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
frétt
fréttin
þolfall
frétt
fréttina
þágufall
frétt
fréttinni
eignarfall
fréttar
fréttarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
fréttir
fréttirnar
þolfall
fréttir
fréttirnar
þágufall
fréttum
fréttunum
eignarfall
frétta
fréttanna