Yrða

gröf

nafnorð kvenkyn
1
staður í kirkjugarði þar sem líkkistu er komið fyrir
bera <hana> til grafar
hann var borinn til grafar í fæðingarborg sinni
fylgja <honum> til grafar
taka gröf
grafa gröf fyrir látinn mann
2
djúp hola sem búið er að grafa
töluvert vatn safnaðist í grafirnar í rigningum
grafa sína eigin gröf
grafa undan eign hagsmunum, skkemma fyrir sjálfum sér
þegar öll kurl komu til grafar <var húsið óíbúðarhæft>
þegar staðreyndir málsins lágu fyrir var ekki hægt að búa í húsinu
<búa við öryggi> frá vöggu til grafar
búa við öryggi frá fæðingu til dauðadags
Samstæður og orðasambönd
Samstæður
Orðasambönd
  • falla í gröfina
  • fara í gröfina
  • frá vöggu til grafar
  • frá vöggunni til grafarinnar
  • ganga í gröfina
  • ganga til grafar
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
gröf
gröfin
þolfall
gröf
gröfina
þágufall
gröf
gröfinni
eignarfall
grafar
grafarinnar