Yrða

hugsa

sagnorð
1
beina huganum að e-u
bíddu aðeins, ég þarf að hugsa
hugsa sig um
velta málinu í huganum
hún hugsaði sig lengi um áður en hún svaraði
hugsa um <hana>
hann hugsaði um atburði gærdagsins
ég hugsa oft um hvað þetta er óréttlátt
hugsa upphátt
segja það sem maður hugsar
2
álíta (e-ð), halda (e-ð)
ég hugsa að hún komi um áttaleytið
3
hafa hugsað sér að <flytja>
hafa áform um að flytja
hvað hafið þið hugsað ykkur að gera í sumarfríinu?
4
geta hugsað sér <þetta>
sjá þetta sem möguleika
hann getur ekki hugsað sér að vinna með henni
ég gæti vel hugsað mér að búa á Spáni
5
táknar undrun eða hneykslun
að hugsa sér
að hugsa sér frekjuna í manninum
að hugsa sér ef engin öfund væri til
hugsaðu þér
hugsaðu þér hvað við höfum það gott hér
6
hugsa + fyrir
hugsa fyrir <þessu>
taka þetta með í reikninginn, gera áætlun
hann hugsaði fyrir öllu og tók með tappatogara
7
hugsa + til
a
hugsa til <hans>
hafa hann í huga sér
ég hugsaði til þín þegar ég las póstkortið
b
geta ekki til þess hugsað
finnast það vond tilhugsun
hann getur ekki til þess hugsað að fyrirtækið falli í hendur útlendinga
8
hugsa + um
hugsa um <garðinn>
annast garðinn
hún hugsar aldrei um uppvaskið
9
hugsa + upp
hugsa <þetta> upp
koma þetta til hugar, detta þetta í hug
hún hugsaði upp nýja aðferð við söluna
10
hugsa + út í
hugsa út í <þetta>
beina huganum að þessu, hugleiða þetta
ég hef aldrei hugsað út í það hvað tré eru mikilvæg
→ sjá: hugsast sagnorð, hugsandi lýsingarorð
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
umhugsun / íhugun
Samstæður
Orðasambönd
  • fljótur að hugsa
  • framkvæma án þess að hugsa
  • geta ekki hugsað heila hugsun
  • hafa margt að hugsa
  • hugsa aftur í tímann
  • hugsa ekki heila hugsun
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
hugsa
hugsaði
önnur persóna
hugsar
hugsaðir
þriðja persóna
hugsar
hugsaði
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
hugsi
hugsaði
önnur persóna
hugsir
hugsaðir
þriðja persóna
hugsi
hugsaði
nafnháttur
hugsa
sagnbót
hugsað
lýsingarháttur nútíðar
hugsandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
hugsa
hugsaðu
hugsið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
hugsarðu
hugsaðirðu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
hugsirðu
hugsaðirðu
Ópersónuleg notkun
Frumlag í þágufalli
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
hugsast
hugsaðist
önnur persóna
hugsast
hugsaðist
þriðja persóna
hugsast
hugsaðist
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
hugsist
hugsaðist
önnur persóna
hugsist
hugsaðist
þriðja persóna
hugsist
hugsaðist
Ópersónuleg
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
hugsast
hugsaðist
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
hugsist
hugsaðist
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
hugsaður
hugsuð
hugsað
þolfall
hugsaðan
hugsaða
hugsað
þágufall
hugsuðum
hugsaðri
hugsuðu
eignarfall
hugsaðs
hugsaðrar
hugsaðs