Yrða

mega

sagnorð þolfall
1
hafa heimild, leyfi til (e-s)
má ég taka mynd hér?
hann mátti ekki tína blómin
við megum segja okkar skoðun
börnin máttu ekki trufla sjúklinginn
það má (ekki) <gera þetta>
það má ekki fara með hunda inn í bankann
2
táknar möguleika
það má líkja ljóðinu við trjágarð
(það) má vera
kannski er það svo; ef til vill
honum er illa við hana - má vera
það má heita svo
það er hægt að kalla það það, það er næstum því þannig
það má heita svo að verkinu sé lokið
það mætti halda að <hann sé hræddur>
maður gæti haldið að ...
það mætti halda að hún sé orðin ráðherra
það mætti segja mér að <hún komi í kvöld>
ég held, ég hef grun um að ...
það mætti segja mér að rafmagnsbílum fari fjölgandi
3
eignarfall
mega sín mikils
hafa mikil áhrif, vera áhrifamikill
hún má sín mikils í flokknum
mega sín lítils
hafa lítil áhrif, vera áhrifalítill, lítilfjörlegur
hönnuðurinn mátti sín lítils í hinni hörðu samkeppni
4
mega + til
mega til að <segja þetta>
verða að <segja þetta>
við megum til að hringja á lögregluna
5
mega + við
mega (ekki) við <þessu>
þola þetta (ekki), geta (ekki) borið þetta
búðin má ekki við því að tapa viðskiptavinum
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
má
mátti
önnur persóna
mátt
máttir
þriðja persóna
má
mátti
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
megi
mætti
önnur persóna
megir
mættir
þriðja persóna
megi
mætti
nafnháttur
mega
sagnbót
mátt
lýsingarháttur nútíðar
megandi
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
máttu
máttirðu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
megirðu
mættirðu
Ópersónuleg notkun
Ópersónuleg
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
má
mátti
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
þriðja persóna
megi
mætti