misþyrming
nafnorð kvenkyn mis-þyrming
1
einkum í fleirtölu
gróft líkamlegt ofbeldi
hann varð fyrir misþyrmingum í fangelsinu
2
slæm meðferð, afbökun
þessi söngur er misþyrming á fallegu lagi
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
misþyrming
- líkamsmeiðingar
- , aflimun
- , píning
- , pyntingar
- , pyndingar
- , misþyrmingar
Samstæður
- glæpur
- , kvalalosti
- , aftaka
- , geðþóttahandtaka
- , rányrkja
Orðasambönd
- kynferðisleg misþyrming
- misþyrming á íslensku máli
- misþyrming á sannleikanum
- verða að þola misþyrmingar
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
misþyrming
misþyrmingin
þolfall
misþyrmingu
misþyrminguna
þágufall
misþyrmingu
misþyrmingunni
eignarfall
misþyrmingar
misþyrmingarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
misþyrmingar
misþyrmingarnar
þolfall
misþyrmingar
misþyrmingarnar
þágufall
misþyrmingum
misþyrmingunum
eignarfall
misþyrminga
misþyrminganna