ná
sagnorð þágufall
1
geta tekið (e-ð), heppnast að fá tak (á e-u)
ég næ ekki því sem er í efstu hillunni
hún náði ekki blettinum úr skyrtunni
við náum strætó ef við hlaupum
hann reyndi að drepa fluguna en náði henni ekki
2
hafa tíma til (e-s), takast að gera (e-ð)
hann náði ekki að klára verkefnið fyrir skólann
3
takast, öðlast, fá (e-ð)
ná árangri
ná bata / heilsu
ná markmiðinu
ná tali af <honum>
ná tökum á <vélinni>
4
spanna (vegalengd, tíma, upphæð)
vegurinn nær að fjallinu
eldhússkápurinn nær alveg upp í loft
hún nær bróður sínum í öxl
þessi smápeningar ná ekki 100 krónum
5
komast (eitthvert)
þau náðu heim fyrir myrkur
ná langt
komast langt á sínu sviði
þessi ungi fiðluleikari á eftir að ná langt
6
standast (próf)
allir nemendurnir náðu prófinu
7
skilja, heyra og festa (e-ð) í minni
ég náði ekki alveg nafninu á honum
náðuð þið því sem fyrirlesarinn sagði?
8
ná sér
fá bata, batna
ég verð heima meðan ég er að ná mér
hún náði sér af kvefinu um síðir
9
ná + fram
ná fram hefndum
geta hefnt sín
ná fram <kröfum sínum>
takast að fá kröfur sínar uppfylltar
10
ná + í
a
ná í <blýant>
sækja <blýant>
þeir náðu sér í kaffi í eldhúsið
viltu ná fyrir mig í vatnsglas?
b
ná sér í <aðgöngumiða>
útvega sér miða
hvar gastu náð þér í svona flottan jakka?
hann er búinn að ná sér í nýja kærustu
c
ná í <hana>
fá samband við hana, geta talað við hana (einkum í síma)
kennarinn var á fundi, ég náði ekki í hann
11
ná + í gegn
<frumvarpið> nær í gegn
frumvarpið er samþykkt
12
ná + niðri
ná sér niðri á <henni>
ná fram hefndum á henni, hefna sín á henni
13
ná + saman
<þeir> ná <vel> saman
þeir mynda gott samband, góðan skilning sín á milli
hún og nýi starfsmaðurinn náðu strax ágætlega saman
14
ná + til
a
ná til <hans>
komast í tæri við hann, komast nálægt honum
ég ætla að skamma hana ef ég næ til hennar
b
ná til <almennings>
komast í gott samband við almenning
kennarinn nær vel til nemendanna
15
ná + undir
ná undir sig <héraðinu>
fá völd í héraðinu
Napóleon náði undir sig Ítalíu
16
ná + upp
a
ná sér upp aftur
verða aftur heill (eftir t.d. veikindi, áfall)
b
<vindurinn> nær sér upp
vindurinn magnast
17
ná + utan um
ná utan um <vandamálið>
ná tökum á öllum þáttum vandamálsins
18
ná + yfir
<kortið> nær yfir <bæði löndin>
kortið spannar bæði löndin
bókmenntasagan nær yfir hundrað ára tímabil
→ sjá: nást sagnorð
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
næ
náði
önnur persóna
nærð
náðir
þriðja persóna
nær
náði
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
náum
náðum
önnur persóna
náið
náðuð
þriðja persóna
ná
náðu
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
næst
náðist
önnur persóna
næst
náðist
þriðja persóna
næst
náðist
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
náumst
náðumst
önnur persóna
náist
náðust
þriðja persóna
nást
náðust
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
nái
næði
önnur persóna
náir
næðir
þriðja persóna
nái
næði
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
náum
næðum
önnur persóna
náið
næðuð
þriðja persóna
nái
næðu
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
náist
næðist
önnur persóna
náist
næðist
þriðja persóna
náist
næðist
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
náumst
næðumst
önnur persóna
náist
næðust
þriðja persóna
náist
næðust
nafnháttur
ná
sagnbót
náð
lýsingarháttur nútíðar
náandi
nafnháttur
nást
sagnbót
náðst
lýsingarháttur nútíðar
náandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
ná
náðu
náið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
nærðu
náðirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
náiði
náðuði
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
náirðu
næðirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
náiði
næðuði
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
næstu
náðistu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
náistu
næðistu
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
náður
náð
náð
þolfall
náðan
náða
náð
þágufall
náðum
náðri
náðu
eignarfall
náðs
náðrar
náðs
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
náðir
náðar
náð
þolfall
náða
náðar
náð
þágufall
náðum
náðum
náðum
eignarfall
náðra
náðra
náðra