Yrða

nótt

nafnorð kvenkyn
dimmi tíminn milli kvölds og morguns
<skipin sigldu> að nóttu til
<ég á erfitt með að vaka> á nóttunni
<vakna alltaf upp> á næturnar
<veislan stóð> fram á nótt
<ég gat ekkert sofið> í (alla) nótt
<hann kemur> í nótt
<ég vakti lengi> í nótt sem leið
<vera andvaka> lengi nætur
<hrökkva upp> um miðja nótt
<það byrjaði að gjósa> um nóttina
það dimmir af nótt/nóttu
leggja nótt við dag
vinna allan sólarhringinn
tjalda lengur en til einnar nætur
gera eitthvað sem endist lengur en skamma hríð
það er ekki öll nótt úti
það er enn von
<verða fátækur> á einni nóttu
... skyndilega
<laumast burt> í skjóli nætur
... um nótt (þegar enginn sér til)
<þessi yfirlýsing> kemur eins og þjófur á nóttu
... kemur óþægilega á óvart
<þræla> nótt sem nýtan dag
vinna endalaust hörðum höndum
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Samstæður
Orðasambönd
  • að nóttu til
  • að nóttunni
  • að úthallandi nóttu
  • aðra nótt
  • alla liðlanga nóttina
  • alla nóttina
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
nótt
nóttin
þolfall
nótt
nóttina
þágufall
nóttnóttu
nóttinninóttunni
eignarfall
nætur
næturinnar