Yrða

njóta

sagnorð eignarfall
1
hafa unun, yndi eða ánægju (af e-u)
hún nýtur tónlistar á kvöldin
við sátum úti og nutum veðurblíðunnar
njóttu góðra veitinga í fögru umhverfi
njóta góðs af <þessu>
fá gott út úr þessu, hagnast á þessu
neytendur nutu góðs af verðsamkeppninni
2
njóta sín
sýna sína bestu hlið
blómin njóta sín ekki við vesturvegginn
hann naut sín betur í gamla starfinu
3
eignarfall
fá gæði, fá e-ð gott (af e-u)
sólarinnar nýtur mest sunnan við húsið
<hans> nýtur (ekki lengur) við
hann er hér (ekki lengur) virkur, á lífi
hún stjórnaði fyrirtækinu meðan hennar naut við
→ sjá: njótast sagnorð
Orðasvið og orðasambönd
Orðasambönd
  • fá að njóta sín
  • haga sér eins og naut í glervörubúð
  • njóta aðhjúkrunar
  • njóta aðhlynningar
  • njóta afþreyingar
  • njóta almenningshylli
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
nýt
naut
önnur persóna
nýtur
naust
þriðja persóna
nýtur
naut
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
njóti
nyti
önnur persóna
njótir
nytir
þriðja persóna
njóti
nyti
nafnháttur
njóta
sagnbót
notið
lýsingarháttur nútíðar
njótandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
njót
njóttu
njótið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
nýturðu
naustu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
njótirðu
nytirðu
Ópersónuleg notkun
Frumlag í eignarfalli
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
nýtur
naut
önnur persóna
nýtur
naut
þriðja persóna
nýtur
naut
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
njóti
nyti
önnur persóna
njóti
nyti
þriðja persóna
njóti
nyti