Yrða

síðastliðinn

lýsingarorð síðast-liðinn
næstur okkur í tímaröð miðað við núverandi tímapunkt, á nýliðnum tíma
atburðurinn gerðist síðastliðinn þriðjudag
skáldið lést 10. febrúar síðastliðinn
kosningarnar fóru fram í nóvember síðastliðnum
Orðasvið og orðasambönd
Orðasambönd
  • á síðastliðnu vori
  • á síðastliðnum vetri
Frumstig
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
síðastliðinn
síðastliðin
síðastliðið
þolfall
síðastliðinn
síðastliðna
síðastliðið
þágufall
síðastliðnum
síðastliðinni
síðastliðnu
eignarfall
síðastliðins
síðastliðinnar
síðastliðins