skott
nafnorð hvorugkyn
1
rófa á hundi, ketti, ljóni og fleiri dýrum
hundurinn dillaði skottinu
2
farangursrými aftast í bíl
3
e-ð lítið, kríli
litla skottið var heima með kvef
elta skottið á sjálfum sér
snúast í kringum sjálfan sig
leggja niður skottið
gefast upp, játa sig sigraðan
ná í skottið á <honum>
ná í hann
Samstæður
Samstæður
- loppa
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
skott
skottið
þolfall
skott
skottið
þágufall
skotti
skottinu
eignarfall
skotts
skottsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
skott
skottin
þolfall
skott
skottin
þágufall
skottum
skottunum
eignarfall
skotta
skottanna