skref
nafnorð hvorugkyn
1
bil milli tveggja fótspora manns á göngu
barnið tók fyrstu skrefin í gær
hún gekk hægum skrefum að glugganum
2
klof á flík
stíga fyrsta skrefið
taka frumkvæðið
stíga skrefið til fulls
gera alvöru úr einhverju
þetta er skref aftur á bak
þetta er afturför
þetta er skref í rétta átt
þetta er til bóta, jákvætt skref
<ferðaþjónusta hefur vaxið> hröðum skrefum
ferðaþjónusta hefur vaxið hratt
<nálgast markmiðið> skref fyrir skref
rólega en örugglega, hægt og sígandi
Orðasvið og orðasambönd
skref
- fótmál
- , byrjunarskref
- , risaskref
- , skessuskref
- , smáskref
- , stórskref
Orðasambönd
- freka skrefið
- ganga skrefi of langt
- hröðum skrefum
- hægum skrefum
- skref fyrir skref
- stíga fyrsta skrefið
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
skref
skrefið
þolfall
skref
skrefið
þágufall
skrefi
skrefinu
eignarfall
skrefs
skrefsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
skref
skrefin
þolfall
skref
skrefin
þágufall
skrefum
skrefunum
eignarfall
skrefa
skrefanna