snúningur
nafnorð karlkyn snún-ingur
1
það að e-ð snýst, það að snúast
gömul 78 snúninga plata
vélin var komin á góðan snúning
2
dans
þau tóku snúning á dansgólfinu
3
í fleirtölu
viðvik, létt smástörf
drengurinn var hafður til snúninga
standast <honum> ekki snúning
vera honum miklu síðri
vera snar í snúningum
vera fljótur, snöggur
vera á síðasta snúningi með <undirbúning veislunnar>
vera á síðustu stundu með ...
<bíllinn> er á síðasta snúningi
bíllinn á stuttan líftíma fyrir höndum
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
snúningur
- hringsnúningur
- , möndulsnúningur
- , vending
- , snarsnúningur
Orðasambönd
- fá sér snúning
- gera sér snúninga
- snar í snúningum
- snúningur jarðarinnar
- vera á síðasta snúningi
- vera fljótur í snúningum
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
snúningur
snúningurinn
þolfall
snúning
snúninginn
þágufall
snúningi
snúningnum
eignarfall
snúnings
snúningsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
snúningar
snúningarnir
þolfall
snúninga
snúningana
þágufall
snúningum
snúningunum
eignarfall
snúninga
snúninganna