Yrða

stig

nafnorð hvorugkyn
1
áfangi í þróun, þrep í framvindu
<tæknin> er á háu/lágu stigi
<málið> er á <viðkvæmu> stigi
2
hitagráða
fimm stiga hiti
3
gráða sem jarðskjálftar eru mældir í
jarðskjálftinn var 3 stig á Richter
4
punktur í matskerfi eða íþrótt
hún skoraði 22 stig í leiknum
5
málfræði
eitt þriggja forma sem lýsingarorð stendur í (frumstig, miðstig, efsta stig)
vera af háum/lágum stigum
vera kominn af hástéttarfólki/lágstéttarfólki
<rannsóknin þokast áfram> stig af stigi
... skref fyrir skref
Orðasvið og samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
stig
stigið
þolfall
stig
stigið
þágufall
stigi
stiginu
eignarfall
stigs
stigsins