sumir
fornafn
óákveðið fornafn
1
sérstætt
(einkum í karlkyni) ótilgreindur hluti fólks almennt
sumir mæta alltaf á réttum tíma en aðrir koma ævinlega of seint
sumum þykir nýja aðferðin betri en sú gamla
fyrir suma var verkefnið auðvelt
2
ótilgreindur hluti af ákveðnum hópi eða heild
sumir stafirnir voru skýrari en aðrir
margar sögur gengu um hann og sumar þeirra voru ævintýralegar
sumar spurningarnar voru beinlínis dónalegar
suma af vinum mínum hitti ég sjaldan
sum barnanna voru sótt í skólann en önnur gengu ein heim
3
hliðstættnafnorðið (oftast) án greinis
ótilgreindur fjöldi úr hópi eða heild af tiltekinni gerð
sumir einstaklingar eru sterkbyggðari en aðrir
sum börn eiga mjög erfitt með að sitja kyrr
þau áttu erfitt með að sætta sig við sumar breytingar
á sumum svæðum rignir bara á ákveðnum árstíma
sumir hverjir
ýmsir, hluti þeirra sem um er rætt
þátttakendur voru sumir hverjir þekktir fræðimenn á sínu sviði
sprungurnar eru sumar hverjar margir kílómetrar að lengd
→ sjá: sumt fornafn
Fallbeygingar
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
sumur
sum
sumt
þolfall
suman
suma
sumt
þágufall
sumum
sumri
sumu
eignarfall
sums
sumrar
sums
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
sumir
sumar
sum
þolfall
suma
sumar
sum
þágufall
sumum
sumum
sumum
eignarfall
sumra
sumra
sumra