Yrða

tollur

nafnorð karlkyn
1
gjald sem er lagt á vöru sem flutt er milli ríkja (innflutta eða útflutta)
2
tollafgreiðsla, t.d. í flugstöð
hann var stöðvaður í tollinum
3
tollfrjáls varningur sem keyptur er á landamærum
eigum við að drekka tollinn í kvöld?
4
leiga fyrir afnot, t.d. af hesti (til undaneldis)
<erfiðleikarnir> taka toll af <heilsu hans>
... fara illa með heilsu hans
Orðasvið og samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
tollur
tollurinn
þolfall
toll
tollinn
þágufall
tolli
tollinum
eignarfall
tolls
tollsins