uppsetning
nafnorð kvenkyn uppset-ning
1
það að setja, raða einhverju upp
smiðir sáu um uppsetningu eldhússkápanna
2
það að koma tólum, tækjum og vélum fyrir
uppsetning á símakerfi
3
það að setja upp verk (leikrit) á sviði
uppsetning verksins var mjög nýstárleg
Orðasvið og samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
uppsetning
uppsetningin
þolfall
uppsetningu
uppsetninguna
þágufall
uppsetningu
uppsetningunni
eignarfall
uppsetningar
uppsetningarinnar
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
uppsetningar
uppsetningarnar
þolfall
uppsetningar
uppsetningarnar
þágufall
uppsetningum
uppsetningunum
eignarfall
uppsetninga
uppsetninganna