vari
nafnorð karlkyn
1
gætni, varkárni
hafa vara/varann á (sér)
hafðu varann á og passaðu að enginn sjái lykilorðið þitt
hafa þarf vara á sér gagnvart kindum á veginum
allur er varinn góður
2
gamalt
viðvörun, áminning
taka <honum> vara fyrir <þessu>
stráknum var tekinn vari fyrir að vera með hávaða
<eiga önnur gleraugu> til vara
hafa önnur gleraugu til að nota ef hin gleraugun eru ekki tiltæk
<hafa með sér landakort> til vonar og vara
hafa með sér landakort til öryggis
Samstæður og orðasambönd
Samstæður
Orðasambönd
- á von og vara
- hafa allan vara við
- hafa vara á
- hafa vara á sér
- hafa varann á
- hafa varann á sér
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
vari
varinn
þolfall
vara
varann
þágufall
vara
varanum
eignarfall
vara
varans
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
varar
vararnir
þolfall
vara
varana
þágufall
vörum
vörunum
eignarfall
vara
varanna