vatn
nafnorð hvorugkyn
1
vökvi gerður úr sambandi súrefnis og vetnis (H²O), sem ár og höf eru gerð úr og er stór hluti af líkama lífvera á jörðinni
hún drakk vatn úr glasi
2
stöðuvatn
það er mikil silungsveiði í vatninu
3
gamaldags
fljót, vatnsfall
þeir fóru yfir vötnin á hestum
eins og að drekka vatn
án mikillar fyrirhafnar
hann hleypur maraþon eins og að drekka vatn
eins og að skvetta vatni á gæs
hefur ekki hin minnstu áhrif
fá vatn í munninn
hlakka til að borða eitthvað gómsætt
fiska í gruggugu vatni
viðhafa ekki heiðarleg vinnubrögð
<kenningin> heldur ekki vatni
... stenst ekki, gengur ekki upp
<hafa aldrei> dýft hendi í kalt vatn
... þurft að vinna (erfiðisvinnu)
<húsið> heldur hvorki vatni né vindi
... lekur og er óþétt
kasta af sér vatni
pissa
mega ekki vatni halda <af hrifningu>
vera frá sér numinn af hrifningu
mikið vatn hefur runnið til sjávar <síðan þetta gerðist>
margt hefur gerst síðan
vera eins og fiskur í vatni
búa við ákjósanlegar aðstæður
<fréttin> er vatn á myllu <andstæðinganna>
... kemur sér vel fyrir þá
<henni> rennur kalt vatn milli skinns og hörunds
... hryllir við, líður mjög ónotalega
setja <fangann> á vatn og brauð
...á mjög lélegt fæði
<andi breytinga> svífur yfir vötnunum
... er ríkjandi
sækja vatn yfir lækinn
taka á sig óþarfa krók, gera sér óþarfa ómak
það sér ekki högg á vatni
það sér engan mun, það virðist ekkert hafa minnkað
þetta kemur allt með kalda vatninu
það gerist á endanum
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
vatn
vatnið
þolfall
vatn
vatnið
þágufall
vatni
vatninu
eignarfall
vatns
vatnsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
vötn
vötnin
þolfall
vötn
vötnin
þágufall
vötnum
vötnunum
eignarfall
vatna
vatnanna