veður
nafnorð hvorugkyn
aðstæður í loftinu hvað varðar hitastig, úrkomu og vind
hvernig er veðrið?
það er gott veður í dag
hann fer út í öllum veðrum með hundinn
þau fengu slæmt veður í ferðinni
fá/hafa veður af <komu hans>
frétta að hann sé að koma
gera veður út af <þessu>
gera of mikið úr þessu
fljótt skipast veður í lofti
hlutirnir geta breyst skyndilega (til hins verra)
láta <þetta> í veðri vaka
gefa þetta í skyn
sækja í sig veðrið
aukast að styrk, eflast
það er allra veðra von
við getum átt von á ýmiss konar (miður góðu) veðri
<laufið> fýkur út í veður og vind
... fýkur út um allt
<ég> vissi ekki hvaðan á <mig> stóð veðrið
þetta kom mér algjörlega á óvart
Orðasvið og samstæður
tíðarfar
Samstæður
- sjávargangur
- , staðhættir
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
veður
veðrið
þolfall
veður
veðrið
þágufall
veðri
veðrinu
eignarfall
veðurs
veðursins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
veður
veðrin
þolfall
veður
veðrin
þágufall
veðrum
veðrunum
eignarfall
veðra
veðranna