veldi
nafnorð hvorugkyn
1
ríki, yfirráðasvæði
Aþena var þá mesta veldi Miðjarðarhafs
2
vald
uppreisnarmenn ógnuðu veldi konungsins
3
stærðfræði
lítil tala sem sýnir hve oft grunntala er margfölduð með sjálfri sér
þrír í öðru veldi er níu
það er veldi á <honum>
hann hefur völd og eignir
<aldan reis> í öllu sínu veldi
aldan reis stór og mikil
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
veldi
veldið
þolfall
veldi
veldið
þágufall
veldi
veldinu
eignarfall
veldis
veldisins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
veldi
veldin
þolfall
veldi
veldin
þágufall
veldum
veldunum
eignarfall
velda
veldanna