verða
sagnorð
1
(í nútíð) sem framtíð af 'vera'
ballið verður á morgun
fyrirlesturinn verður fluttur seinna
2
fara í e-t ástand, gerast
hún varð mjög reið
þeir urðu blautir í rigningunni
hún varð ekkja fyrir 10 árum
hann yrði glaður ef hann fengi frídag
ég hef aldrei orðið jafn hissa
þágufall<mér> verður <kalt>
henni var orðið heitt þarna inni
þágufall<mér> verður illt
honum verður illt af áfengi
3
gera (e-ð) í lífinu
hann ákvað ungur að verða prestur
4
sem háttarsögn (með 'að' og nafnhætti), táknar nauðsyn, þörf, skyldu, kvöð
ég verð að heimsækja hana
það verður að gera við þakið
þau urðu að bíða í fjóra tíma
5
verða + að
verða að <þessu>
breytast í þetta
áin verður að stórfljóti í miklum rigningum
verða að engu
draumar hans urðu að engu
6
verða + af
verða af <tónleikunum>
missa af tónleikunum
það verður ekkert af <skemmtuninni>
skemmtunin verður ekki haldin
það varð ekki af því að þau færu til Spánar
láta verða af <þessu>
framkvæma þetta, gera alvöru úr þessu
<mér> verður meint af <matnum>
ég skaðast af matnum, verður illt af honum
7
verða + á
<mér> verður <þetta> á
ég geri þetta óvart, fyrir mistök
honum varð á að banka á ranga hurð
mér urðu á mistök
8
verða + eftir
verða eftir
vera á sama stað, fara ekki neitt
bakpokinn hans varð eftir í lestinni
ég ákvað að verða eftir þegar hinir fóru í gönguferð
9
verða + fyrir
verða fyrir bíl
fá á sig bíl (um óvarinn mann eða dýr)
verða fyrir <tjóni>
fá tjón, hljóta tjón
hann varð fyrir þungu áfalli
10
verða + ofan á
<tillagan> verður ofan á
tillagan er samþykkt, ákveðin, hún sigrar
11
verða + til
a
<lagið> verður til
lagið fær tilveru, lagið er skapað
málverkið varð til á þremur mánuðum
hvernig varð jörðin til?
b
<þetta> verður til þess
þetta hefur þær afleiðingar
slysið varð til þess að hún hætti að vinna
12
verða + um
a
<mér> varð mikið um
ég verð fyrir miklum áhrifum, mér bregður mjög
henni varð mikið um þessar fréttir
b
hvað verður um <börnin>?
hver verða afdrif barnanna, hvað kemur fyrir þau?
hvað varð um húsið þegar þau dóu?
13
verða + undir
a
verða undir
mega sín minna, tapa
þessi tegund verður oftast undir í baráttunni um ætið
b
verða undir <bíl>
lenda undir bíl í slysi
14
verða + úr
a
<þetta> varð úr
niðurstaðan varð þessi
b
það varð <lítið> úr <rigningunni>
það varð minni rigning er búist var við
það verður <lítið> úr <peningunum>
peningarnir endast illa eða eyðast hratt
c
það verður <eitthvað> úr <henni>
hún á eftir að verða merk eða mikilvæg
það verður ekkert úr honum ef hann heldur áfram að slarka
15
verða + úti
a
verða úti
deyja úti í kuldanum
hann varð úti í óveðri á fjöllum
b
<skógurinn> verður illa úti
skógurinn skemmist mikið
borgin varð illa úti í jarðskjálftanum
c
verða sér úti um <bensín>
útvega sér bensín, finna sér til bensín
þeir urðu sér úti um lítinn árabát
16
verða + við
verða við <beiðninni>
uppfylla beiðnina, fara að beiðninni
borgaryfirvöld ætla að verða við ósk íbúanna
Orðasambönd
Orðasambönd
- að því er séð verður
- bíða þess sem verða vill
- bjarga því sem bjargað verður
- eftir því sem næst verður komist
- eins og best verður á kosið
- eldur verður laus
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
verð
varð
önnur persóna
verður
varðst
þriðja persóna
verður
varð
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
verðum
urðum
önnur persóna
verðið
urðuð
þriðja persóna
verða
urðu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
verði
yrði
önnur persóna
verðir
yrðir
þriðja persóna
verði
yrði
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
verðum
yrðum
önnur persóna
verðið
yrðuð
þriðja persóna
verði
yrðu
nafnháttur
verða
sagnbót
orðið
lýsingarháttur nútíðar
verðandi
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
verð
—
verðið
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
verðurðu
varðstu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
verðiði
urðuði
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
verðirðu
yrðirðu
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
verðiði
yrðuði
Lýsingarháttur þátíðar (sterk beyging)
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
orðinn
orðin
orðið
þolfall
orðinn
orðna
orðið
þágufall
orðnum
orðinni
orðnu
eignarfall
orðins
orðinnar
orðins
Karlkyn
Kvenkyn
Hvorugkyn
nefnifall
orðnir
orðnar
orðin
þolfall
orðna
orðnar
orðin
þágufall
orðnum
orðnum
orðnum
eignarfall
orðinna
orðinna
orðinna