viðskilnaður
nafnorð karlkyn við-skilnaður
1
það þegar einhverjir skiljast að, aðskilnaður
loksins hittust þau aftur eftir langan viðskilnað
2
það hvernig skilið er við t.d. húsnæði sem flutt er úr, frágangur
mönnum þótti viðskilnaður fráfarandi borgarstjóra mjög klúðurslegur
3
það að deyja, dauði
viðskilnaður hans var hægur og kvalalaus
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
viðskilnaður
viðskilnaðurinn
þolfall
viðskilnað
viðskilnaðinn
þágufall
viðskilnaði
viðskilnaðinum
eignarfall
viðskilnaðar
viðskilnaðarins