Yrða

ár

nafnorð kvenkyn
áhald til að knýja bát með handafli
koma ár sinni fyrir borð
tryggja hagsmuni sína, koma sér í góða aðstöðu
leggja árar í bát
gefast upp
leggjast á árina/árarnar með <honum>
aðstoða <hann>
við gerum þetta ekki ein því gott fólk leggst á árarnar með okkur
róa að því öllum árum að <fá hann lausan>
reyna með öllum ráðum <að fá hann lausan>
taka (of) djúpt í árinni
fullyrða (of) mikið, vera (of) stórorður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
ár
árin
þolfall
ár
árina
þágufall
ár
árinni
eignarfall
árar
árarinnar