Yrða

öld

nafnorð kvenkyn
1
hundrað ára tímabil
sautjánda öldin
handrit frá þrettándu öld
sagan gerist á fyrri hluta tuttugustu aldar
2
(fremur langt) tímabil með tilteknum eiginleikum eða atburðum
öld vélvæðingar
öld framfara
þá var öldin önnur
það var öðruvísi þá
<þessi menning nær> aftur í aldir
... er margra alda gömul
<þetta hefur fylgt mannkyninu> frá örófi alda
... frá upphafi vega
<láta vekja sig> fyrir allar aldir
... mjög snemma
<þetta lögmál gildir> um aldir alda
... að eilífu
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
Samstæður
Orðasambönd
  • aftur í aldir
  • á afliðinni öld
  • á nærverandi öld
  • á næstu öld
  • efri hluta aldarinnar
  • fara á fætur fyrir allar aldir
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
öld
öldin
þolfall
öld
öldina
þágufall
öld
öldinni
eignarfall
aldar
aldarinnar