mánuður
nafnorð karlkyn mán-uður
samfellt tímabil sem nær yfir 28-31 dag
árið skiptist í tólf mánuði
barnið er sjö mánaða gamalt
tímaritið kemur út tvisvar í mánuði
hann dvaldi í Frakklandi í mánuð
hún fer til tannlæknis á sex mánaða fresti
þeir ætla að hittast síðar í þessum mánuði
þau ætla að flytja í lok mánaðarins
launin er greidd út í byrjun hvers mánaðar
ég kom þangað aftur fjórum mánuðum síðar
vera komin þrjá mánuði á leið
hafa gengið með barn í þrjá mánuði
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
mánuður
mánuðurinn
þolfall
mánuð
mánuðinn
þágufall
mánuði
mánuðinum
eignarfall
mánaðar
mánaðarins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
mánuðir
mánuðirnir
þolfall
mánuði
mánuðina
þágufall
mánuðum
mánuðunum
eignarfall
mánaða
mánaðanna