þriðjudagur
nafnorð karlkyn þriðju-dagur
3. dagur vikunnar
á þriðjudaginn
1
næsta þriðjudag
námskeiðið byrjar á þriðjudaginn
2
síðasta þriðjudag
ég fór í banka á þriðjudaginn
á þriðjudaginn kemur
næsta þriðjudag
fundurinn verður á þriðjudaginn kemur
á þriðjudaginn var
síðasta þriðjudag
á þriðjudeginum
þann ákveðna þriðjudag
við skoðuðum tvær kirkjur á þriðjudeginum
á þriðjudögum
almennt alla þriðjudaga
stærðfræðin er kennd á þriðjudögum
síðastliðinn þriðjudag
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
þriðjudagur
þriðjudagurinn
þolfall
þriðjudag
þriðjudaginn
þágufall
þriðjudegi
þriðjudeginum
eignarfall
þriðjudags
þriðjudagsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
þriðjudagar
þriðjudagarnir
þolfall
þriðjudaga
þriðjudagana
þágufall
þriðjudögum
þriðjudögunum
eignarfall
þriðjudaga
þriðjudaganna