þroski
nafnorð karlkyn
1
ferlið þegar einhver eða eitthvað breytist hægt og hægt, í áttina að fullgerðu ástandi
vöxtur og þroski barnsins á fyrsta æviári
rifsberin hafa ekki enn náð fullum þroska
líkamlegur þroski
taka út þroska
2
ferlið þegar einhver breytist í áttina að meiri visku og ábyrgð
höfundurinn hefur náð meiri þroska í seinni verkum sínum
hann hefur ekki þroska til að axla ábyrgðina
andlegur þroski
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
þroski
þroskinn
þolfall
þroska
þroskann
þágufall
þroska
þroskanum
eignarfall
þroska
þroskans