Íslensk nútímamálsorðabók
Ítarleit
- Færslur
- 56.148
- Orðafjöldi í skýringum
- 424.741
- Orðafjöldi í orðasamböndum
- 61.873
- Orðafjöldi í dæmum
- 221.616
hópflug
nafnorð hvorugkynárstíðabundið flug farfugla yfir höf og lönd
strekkingur
nafnorð karlkynBeygingarmynd skilgreining á vindhraða, 10,8 - 13,8 m/s eða 6 vindstig (meira en kaldi og minna en allhvass vindur), stinningskaldi
götuhæð
nafnorð kvenkynBeygingarmynd neðsta hæð ofan við kjallara, liggur jafnhátt eða lítið eitt hærra en gatan úti fyrir
yfirflæði
nafnorð hvorugkynBeygingarmynd það þegar tölur eða texti kemst ekki fyrir í minni, t.d. við reikniaðgerðir þar sem útkoman er of há tala
lingerður
lýsingarorðekki sterkur, kraftlítill, duglítill
kroppa
sagnorðbíta eða borða dálítið, naga (e-ð)
nögl
nafnorð kvenkynBeygingarmynd hafa lítið af mat, skammta hann naumt
aukahlutverk
nafnorð hvorugkynBeygingarmynd skipta minna máli en aðrir við tilteknar aðstæður
gleiður
lýsingarorðBeygingarmynd horn sem er meira en 90° og minna en 180°
fjöðurstafur
nafnorð karlkynstofninn (harði hlutinn) í fuglsfjöður, áður notaður sem penni
gammur
nafnorð karlkynstór sköllóttur ránfugl af haukaætt sem étur hræ
kjói
nafnorð karlkynstrandfugl af kjóaætt, brúnleitur með langa vængi
mávur
nafnorð karlkynsjófugl af ætt Laridae (einnig ritað máfur)
þiður
nafnorð karlkynstór, villtur hænsnfugl með stórt og mikið stél
nytjaskepna
nafnorð kvenkyndýr sem menn hafa gagn af, t.d. sauðfé og æðarfugl
svala
nafnorð kvenkynspörfugl af ætt Hirundinidae, auðþekktur á löngu stéli
álft
nafnorð kvenkynstærsti varpfugl Íslands, alhvítur og auðþekktur á löngum hálsi
fit
nafnorð kvenkynhúðblaðka milli klóa á sundfuglum (og táa á fleiri dýrum)
farfuglaheimili
nafnorð hvorugkyngistiheimili rekið af ferðasamtökum sem nefna sig farfugla
fréttabréf
nafnorð hvorugkynBeygingarmynd lítið blað eða ritsmíð á vefnum sem félag, fyrirtæki eða stofnun gefur reglulega út með fréttum um starfsemina o.fl.