áreiti
nafnorð hvorugkyn á-reiti
1
það að áreita e-n, valda e-m ama, áreitni
leikkonan verður að þola stöðugt áreiti ljósmyndara
kynferðislegt áreiti
2
ytri truflandi áhrif
við búum við mikið áreiti frá umhverfinu
3
líffræði
örvun skynjunar eða skynfæris
sjónfrumur svara áreiti í formi ljóss
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
áreiti
áreitið
þolfall
áreiti
áreitið
þágufall
áreiti
áreitinu
eignarfall
áreitis
áreitisins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
áreiti
áreitin
þolfall
áreiti
áreitin
þágufall
áreitum
áreitunum
eignarfall
áreita
áreitanna