Yrða

búskapur

nafnorð karlkyn bú-skapur
1
það að stunda landbúnað, rekstur bændabýlis
dóttir bóndans tók við búskapnum
2
það að reka heimili, heimilisrekstur
byrja búskap
hefja heimilisrekstur
Orðasvið og samstæður
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
búskapur
búskapurinn
þolfall
búskap
búskapinn
þágufall
búskap
búskapnum
eignarfall
búskapar
búskaparins