biti
nafnorð karlkyn
1
það sem bitið er úr e-u
hún tók stóran bita af kökunni
2
dálítill matur, dálítið að borða, matarbiti
má ekki bjóða þér bita með kaffinu?
3
skorið stykki
skerið fiskinn í litla bita
biti af <brauði>
4
þverbjálki í húsi
5
tölvur
minnsta eining tölvuvgagna / tölvuverks, tölustafurinn 0 eða 1 í tvíundakerfinu
16 bita örgjörvi
6
stykki í púsluspili
þúsund bita púsluspil
þar fór góður biti í hundskjaft
þar lenti dýrmæti í höndum óverðugra
Orðasvið og samstæður
máltíð
skammtur
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
biti
bitinn
þolfall
bita
bitann
þágufall
bita
bitanum
eignarfall
bita
bitans
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
bitar
bitarnir
þolfall
bita
bitana
þágufall
bitum
bitunum
eignarfall
bita
bitanna