brjótast
sagnorð miðmynd
1
komast áfram með erfiðismunum
hann braust í gegnum skaflana
bílarnir brutust áfram í ófærðinni
sólin brýst í gegnum skýin
2
brjótast + fram
<áin> brýst fram
áin hleypur fram, ryðst fram
tárin brutust fram í augum hennar
3
brjótast + inn
brjótast inn
fara í óleyfi inn í hús (til að skemma eða stela), fremja innbrot
þeir brutust inn í bílinn hans
það var brotist inn <í verslunina>
4
brjótast + í
<þetta> er að brjótast í <mér>
ég brýt heilann um þetta, hugsa mikið um þetta
ákveðið lag var að brjótast í höfði hennar
5
brjótast + til
brjótast til <valda>
hún hefur brotist til valda í flokknum
6
brjótast + um
brjótast um
berjast við að losa sig
barnið braust um í fanginu á mömmu sinni
brjótast um á hæl og hnakka
vera með áköf umbrot, hreyfingar til að losa sig
sá handtekni braust um á hæl og hnakka
7
brjótast + undan
brjótast undan <konungnum>
losa sig með átökum og baráttu undan honum
siðbótarmenn brutust undan valdi páfans
8
brjótast + út
<fagnaðarlæti> brjótast út
fagnaðarlæti upphefjast
eldur brýst út
eldur kemur upp
það brýst út <stríð>
stríð upphefst
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
brýst
braust
önnur persóna
brýst
braust
þriðja persóna
brýst
braust
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
brjótumst
brutumst
önnur persóna
brjótist
brutust
þriðja persóna
brjótast
brutust
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
brjótist
brytist
önnur persóna
brjótist
brytist
þriðja persóna
brjótist
brytist
Nútíð
Þátíð
fyrsta persóna
brjótumst
brytumst
önnur persóna
brjótist
brytust
þriðja persóna
brjótist
brytust
nafnháttur
brjótast
sagnbót
brotist
Boðháttur
Stýfður
Eintala
Fleirtala
boðháttur
—
brjóstu
brjótist
Spurnarmyndir
Framsöguháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
brýstu
braustu
Viðtengingarháttur
Nútíð
Þátíð
önnur persóna
brjótistu
brytistu