dæmi
nafnorð hvorugkyn
1
þraut í stærðfræði, reikningsþraut, reikningsdæmi
dæmið gengur upp
leysa/reikna dæmið
2
sýnishorn af e-u (óáþreifanlegu)
framkoma borgarstjórans er dæmi um hroka yfirvalda
3
það að e-ð á sér stað, atburður, tilfelli
þess eru mörg dæmi að menn kaupi hús í útlöndum
fara að dæmi <hennar>
gera eins og hún, hafa hana að fordæmi
snúa dæminu við
a
skoða málið frá annarri hlið
b
snúa vörn í sókn
til dæmis
svo dæmi sé tekið, til að mynda; oft skammstafað t.d.
það er til í dæminu að <kaffið misheppnist>
það á sér stundum stað að kaffið misheppnast
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
dæmi
dæmið
þolfall
dæmi
dæmið
þágufall
dæmi
dæminu
eignarfall
dæmis
dæmisins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
dæmi
dæmin
þolfall
dæmi
dæmin
þágufall
dæmum
dæmunum
eignarfall
dæma
dæmanna