eldur
nafnorð karlkyn
logi sem myndast við brennslu efnis við hátt hitastig
eldur kviknar
eldur kemur upp
eldurinn logar
kveikja eld
eldurinn kulnar
leggja eld að <húsinu>
ráða niðurlögum eldsins
fara úr öskunni í eldinn
frara úr slæmu ástandi í eitthvað ennþá verra
hafa mörg járn í eldinum
fást við marga hluti í einu
hella olíu á eldinn
gera eitthvað sem veldur meiri óróa
leika sér að eldi/eldinum
kalla yfir sig hættu
skara eld að sinni köku
bæta eigin hagsmuni
þessi þingmaður hugsar um það eitt að skara eld að eigin köku
<honum> fellur allur ketill í eld
honum verður ekki um sel, honum líst ekki á blikuna (frammi fyrir e-u ískyggilegu)
mér féll allur ketill í eld þegar ég leit yfir prófspurningarnar
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
eldur
eldurinn
þolfall
eld
eldinn
þágufall
eldi
eldinum
eignarfall
elds
eldsins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
eldar
eldarnir
þolfall
elda
eldana
þágufall
eldum
eldunum
eignarfall
elda
eldanna