ljós
nafnorð hvorugkyn
1
birta, ljómi
kveikja ljósið
slökkva ljósið
það logar ljós
2
þægt barn
ég get ekki kvartað, hann er svo mikið ljós
fá grænt ljós á <framkvæmdirnar>
fá leyfi til að byrja ...
í ljósi <aðstæðna>
miðað við hvernig aðstæður eru
láta í ljós <álit sitt>
segja skoðun sína
láta ljós sitt skína
láta mikið á sér bera
varpa ljósi á <ástæðuna fyrir morðinu>
koma með skýringu á ...
það kom í ljós að <ég hafði misskilið þetta>
það sýndi sig ...
það rennur upp fyrir <honum> ljós
hann öðlast (allt í einu) skilning
<meta aðstæður> í <nýju> ljósi
... upp á nýtt
<rannsóknin> leiðir í ljós að <hann er smitaður>
... gefur þá niðurstöðu að ...
Orðasvið, samstæður og orðasambönd
ljós
Orðasambönd
- hrella ljósið
- láta skoðanir sínar í ljósi umbúðalaust
- láta tilfinningar sínar í ljósi
- ljósið er komið á bláskar
- með logandi ljósi
- setja ekki ljósið undir mæliask
Fallbeygingar
Eintala
eintala með greini
nefnifall
ljós
ljósið
þolfall
ljós
ljósið
þágufall
ljósi
ljósinu
eignarfall
ljóss
ljóssins
Fleirtala
fleirtala með greini
nefnifall
ljós
ljósin
þolfall
ljós
ljósin
þágufall
ljósum
ljósunum
eignarfall
ljósa
ljósanna